Þínar stillingar
Vafrakökur á Miðatorgi
Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vefurinn geymir í vafranum þínum. Sumar tryggja að vefurinn virki. Aðrar muna valið þitt, ef þú leyfir það.
Nauðsynlegar kökur
Þessar kökur halda utan um innskráningu, tryggja öruggt innskráningarferli og verja innsendingu eyðublaða. Þær eru notaðar þegar viðkomandi virkni er nýtt og þurfa ekki sérstakt samþykki.
Innskráning getur gilt í allt að 14 daga og endurnýjast við notkun. Tímabundnar kökur við ytri innskráningu gilda stutt; ytri innskráningarlotan okkar gildir í 10 mínútur. Varnir fyrir eyðublöð nota lotukökur.
Við geymum líka hvort þú leyfðir eða hafnaðir stillingakökum, svo þú þurfir ekki að svara aftur í hverri heimsókn. Sú kaka heitir midatorg.cookie-consent.v1 og gildir í eitt ár frá síðasta vali.
Stillingakökur — þitt val
Ef þú leyfir stillingakökur munum við hvaða stöður þú velur í síunni undir Miðabeiðnum. Kakan heitir midatorg.mytickets.status-groups.v1, geymir aðeins valdar stöður og gildir í eitt ár frá síðustu vistun.
Valið er geymt í þessum vafra og samstillist ekki milli tækja. Kakan inniheldur hvorki nafn né netfang og er ekki notuð til auglýsingarakningar.
Veljir þú aðeins nauðsynlegar kökur geturðu áfram notað síuna. Allar stöður birtast aftur þegar þú kemur aftur á síðuna eða endurhleður hana.
Þú getur alltaf skipt um skoðun
Opnaðu Vafrakökustillingar í síðufætinum til að breyta valinu. Ef þú afturkallar leyfi fyrir stillingakökum eyðum við vistuðu síuvali og hættum að vista það milli heimsókna.
Þú getur einnig eytt kökum eða lokað á þær í stillingum vafrans. Ef þú eyðir samþykkiskökunni spyrjum við aftur; ef þú lokar á nauðsynlegar kökur getur innskráning hætt að virka.